Þriðjudagur, 9. október 2007
Hvernig var nú sagan...?
Börnin í fjölskyldunni voru nokkur... Allir hlökkuðu til þakkargjörðarhátíðarinnar... Í nágrenninu var munaðarleysingjaheimili... Mamman tók börn þaðan inn á heimilið yfir hátíðina ár eftir ár... Einn sonurinn var ekki alveg nógu sáttur... Hann nefndi þetta við mömmu sína... Af hverju ókunnug börn þyrftu að vera að þvælast á þeirra heimili á svona sérstökum tíma...
HÚN SAGÐI:
My dear, to those who are given much, much is expected!
Sonurinn er Michael O. Johnson, forstjóri Herbalife og hann segir þessa sögu gjarnan þegar hann kynnir Herbalife Familiy Foundation, www.herbalifefamily.org
Ég styrki Herbalife Family Foundation, sem og nokkur önnur góð málefni innanlands sem utan!
Mér finnst ég nefnilega vera "given much", ég á þrjú heilbrigð yndislegt börn, yndislegan eiginmann, heilbrigða foreldra, góða vini, stríðslaust umhverfi, stórbrotið orkumikið landslag, tækifæri til að vera ég sjálf, ég er metin að verðleikum, öruggt heimili, nóg að borða, hlýtt rúm, drauma og, og, og............
FYRIR ÞETTA ÞAKKA ÉG Á HVERJUM DEGI!
Athugasemdir
....(gæsahúð).... Vá hvað það er gott að minna sig reglulega á hvað maður hefur það ótrúlega gott.
Takk fyrir þessa punkta !
Halldóra
Halldóra Skúla (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 16:51
Ég hef verið svo lánsamur að hafa 2 af þremur börnum mínum hjá mér hér í Afriku í 2 daga og og akkurat þetta hefur verið umræðuefnið okkar, hversu mikið við eigum að þakka fyrir og veistu, ég held að þau og ég ekki síður séum þakklátari í dag en við vorum í gær. Frábær síða hjá þér Díana enda ertu frábær kona. Haltu áfram á sömu braut ....
MG
Magnús Guðjónsson, 13.10.2007 kl. 23:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.