Fimmtudagur, 17. apríl 2008
Vorið er komið...
...og grundirnar gróa, gilin og lækirnir fossa á brún.
Syngur í runni og senn kemur lóa, svanur á tjarnir og þröstur í tún.
Nú tekur hýrna um hólma og sker, hreiðra sig blikinn og æðurin fer.
Hæðirnar brosa og hlíðarnar dala, hóar þar smali og rekur á ból,
lömbin sér una um blómgaða bala, börnin sér leika að skeljum á hól.
Er þetta ekki bara svona? Eða teljum við okkur trú um eitthvað annað, kvef fylgi vorinu, allt verði ljótt og blautt, það hlýni ekki nógu hratt, snjórinn sé endalaus, rykið sjáist of vel, skólinn að verða búinn úff, hvernig höfum við ofan af f. börnunum............ og svoooo framvegis.
Ég trúi því að hver dagur sé sá besti í lífinu og ég er svooo löngu búin að gleyma á morgun hvernig veðrið var í gær.
Kíkið á þetta myndband og "jútúbið" svo Jim Rohn og horfið á eitt myndband á dag og lífið verður bara nákvæmlega eins og við sjáum það fyrir okkur, ekki eins og einhver annar leggur það upp í hendurnar á okkur
Sjáumst og skjáumst.
Athugasemdir
Takk fyrir hvatningu dagsins
Solveig Friðriksdóttir, 17.4.2008 kl. 17:19
Gaman að sjá blogg frá þér Díana, haltu nú áfram, þú hefur svo mikið að segja.. og þetta myndband með vísdómsorðum Jim Rohn er náttúrulega bara til þess fallið að við höfum það eins og við viljum, við ráðum manstu..
Sjáumst vonandi um helgina..
Magnús Guðjónsson, 18.4.2008 kl. 10:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.